mánudagur, febrúar 10, 2003

uhuuhuuhuu.....ég er ennþá lasin.....það er ekki gaman. Manni líður eins og aumingja.......aumingja sem getur ekki gert neitt....er þreyttur eftir sjö skref eða eftir að vaska upp tvö glös og disk......ooooooo.....ömurlegt!!! Hélt ég væri orðin miklu betri í dag og ákvað að labba uppí Melabúð...ath. labba af því að Villi var á bílnum.....það hefði nú ekki átt að vera mikið mál..ég meina ekkert spes veður en ég er nú nýbúin að ´fá nýja úlpu og svol. Nú þannig að miss going on healthy dúðaði sig bara og rölti af stað í melabúðina --- úfffff-----þreytt og með svima eftir hálfa leiðina.....en þraukaði samt og komst heim aftur....hef ekki náð mér síðan!!!
LOTTUSAGA!!Sko ég elska litlu sætu kisuna mína og í gær sat ég í sófanum og horfði á hana skrönglast undarlega eftir gólfinu í áttina til mín......svona eins og hún væri að skríða bara með framlöppunum....ótrúlega fyndin......hahaha.....hélt ég þangað til Villi labbaði inn og sá hana......og við komumst að því að hún var ekki bara að vera ótrúlega klár og fyndinn köttur heldur var hún að skeina sér á gólfinu!!!!!!! OJJJJJJJJ.....og þegar ég fór að athuga málið betur þá var kúkaslóð frá kassanum á klósettinu...yfir alla stofuna.....til baka og inn í svefnherbergi!!! AArrrrgggg........ég verð að viðurkenna að mér þótti ekkert sérstaklega vænt um hana á meðan ég var að skúra skítinn eftir hana.....enda ekki það æðislegasta að þurfa að skrúbba þegar maður er með kvef upp í heila og hósta ofaní lungu!!! Og ég vil taka það fram að hún fékk ekki að sofa uppí þessa nótt!!! En hún hefur verið tekin í sátt aftur enda búin að vera yndisleg í allan dag!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home