miðvikudagur, febrúar 12, 2003

Ég er ennþá með kvef.......eiginlega er ég með kvef á við fimm manns....það er ekki gott því það verður svo mikil eyðsla á snýtipappír. Svo er ég líka ennþá með hósta..... samt bara á við fjóra....það er heldur ekki gott! Fór í apótekið í gær til að fá mér hóstamixtúru...ætlaði að fá mér eins og ég fékk seinast en svo er hún víst lyfseðilsskyld og ekki nennti ég til læknis...konan í apótekinu sagði mér bara að kaupa parkódín og pektólín og sjússa því svo saman í mig og þá væru komin svipuð áhrif og af þessari læknamixtúru.......sem var mjög gott......bara taka 4 parkódín og nokkra sjússa af pektólíni fyrir svefninn.....and you´re in heaven.....og aðeins meira og then you´re actually really in heaven!!! Verð eiginlega að losna við þetta fyrir laugardaginn.....þá er nefninlega próf....og ég veit ekki hvort maður má vera dópaður í prófum!!! Svo vil ég helst vera orðin frísk af því að hún María er að halda uppá afmælið sitt á laugardaginn og þá þarf ég að geta djammað pínu smá!!
Æi eiginlega ætti ég að vera að læra fyrir þetta aðferðafræðipróf núna......oohhh....þetta er bara ekki alveg á minni línu......kannski ég reyni samt smá áður en L'oa fer að hjálpa mér á morgun. Fór í dæmatíma áðan.....það voru svo margir að það var varla hægt að fylgjast með......svo fór öll einbeitningin líka í það að passa að hósta ekki of mikið og sjúga laumulega upp í .....æi af því að mér hefur aldrei fundist það sérstaklega eftirsóknarvert að snýta mér í fjölmenni.......fólk sem snýtir sér í fjölmenni á Íslandi er litið hornauga.......eða kannski HORauga.......þess vegna hefði ég viljað vera stödd í þýskalandi í dæmatíma...því að þar snýta allir ´sér alltaf allsstaðar án þess að nokkur kippi sér upp við það!!! En Þjóðverjar eru líka svo ódannaðir.....og ósmekklegir....með sítt að aftan og hormottu......HORmotta.....rosalega eru mörg orð sem innihalda þetta ógeðfellda orð hor.......hormotta.....horrengla....hortugheit......hmmmm....man ekki meira....ókei þau eru kannski ekkert svo mörg.
Hei ég og Arna erum að hugsa um að skella okkur til Danaveldis um mánaðrmótin........jú og kannski Lóa líka......eru einhverjir fleiri með í það......hræbillegt....og bara að skella því á VISA eða EURO. 'Eg sem er samt búin að vera svo dugleg að nota ekkert VISAkortið mitt í langan langan tíma....sendi það bara í geymslu í bankann...en nú koma dagar djöfulsins aftur....ég hringdi nebblega í bankann í dag og bað þá um að senda mér kortið mitt....og þá er voðinn vís. Held ég verði að setja aftur inn auglýsinguna mína á einkamál.is um erótískt nudd...það gaf svo ansi vel hérna á sínum tíma......nema ég skreppi bara norður og taki nokkur kvöld á Bókvalshorninu....annars skilst mér að Jón Hlaupari sé fluttur í bæinn þannig að ég græði kannski ekkert á því!!! OJJJJ ojjjjjj þetta er næstum of ógeðsleg hugsun til þess að setja hana á prent.......eru annars einhverjar aðrar góðar hugmyndir á floti þarna í vatnshöfuðunum ykkar hinna???......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home