laugardagur, október 01, 2005



Dagurinn í dag hefur verið mjög góður framan af. Í fyrsta lagi er klukkan bara tólf og ég er komin á fætur - en eins og margir vita þá gerist það ekki á hverjum laugardegi. Á þessum tíma sem ég hef verið vakandi í dag hefur eftirfarandi átt sér stað (í tímaröð):

-- Fékk bakmeðferð í morgunsárið (eitt af mínu uppáhalds)

-- Fékk loforð um tvo frípassa á kvikmyndahátíðina

-- Fékk egg og beikon í morgunmat

-- Fékk boð í kvöldmat í kvöld

-- Fékk útborgað úr báðum vinnum

Þeir sem eiga heiðurinn af þessum ánægjulega morgni eru Villi, Soffía systir, Stebbi bróðir og að sjálfsögðu ég. Í tilefni af þessum ánægju degi lét ég fylgja með mynd af músinni minni henni Brynju bróðurdóttur. Hún er þónokkuð stærri í dag en hvað um það...mér tókst allavegana að setja inn mynd :o)

Ég ætla að leyfa mér að vona að þessi 1.október sé lýsandi fyrir allan mánuðinn....þá væri nú gaman.

Í lokin vil ég segja Örnu og Björgu að ég sendi þeim mikil gáfuhugskeyti í morgun til þess að þeim gengi sem allra best í prófunum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home