miðvikudagur, apríl 09, 2003

Nú hefur verið brotið blað í sögu bloggvina minna hún L'OA a.k.a. Ólafía Kristín Guðmundsdóttir "PINK" hefur hafið bloggferil sinn með stæl!!! Mér skilst að ferillinn hafi þó byrjað með stigvaxandi þrýstingi frá unnustanum Jóhanni sem b.t.w. heldur með fótboltaliðunu sem er bannað að hafa orð á á þessari síðu...en það er sko þetta rauða í enska....samt ekki þetta besta (sem að sjálfsögðu er Liverpool!!!)......já hahahaha þetta lið TAPAÐI líka illilega leiknum sínum í gær :o)

Það er samt allt að gerast núna....afi og amma mætt í bæinn.......mamma að koma á föstudaginn........Villi að ljúka vinnutörninni......Rebekka að klára prófin.....og akkúrat þá þarf ég að vera´á fullu að læra og vera í prófi!!!! OOOOOO WHAT A WONDERFUL WORLD!!! Ætla nú samt kannski að kíkka pínu út með henni Lóu minni....svona að hita upp fyrir fyrirlesturinn og prófið á morgun.......

'i dag er 9. apríl.....ekki á morgun heldur hinn (11.) þá á hún Lóa ammæli...og líka Sigga Olga.....og líka Addi MAN......og líka ææi nú man ég ekki alveg hvort að Snorri eða Hólmar á líka ammæli.........annar á ammæli 14. og hinn ooooo man það ekki......

Djöfull er mikið að veðrið er ekki eins og það sé nóvember......hata að vakna úti í roki og rigningu eins og síðustu daga......já sko ef þið skylduð ekki hafa frétt af því þá var ég rekin á dyr og bý þess vegna niðri við ruslageymslurnar.....fékk að plögga tölvunni inn hjá fólkinu á fjórðu hæð....bara í gegnum ruslakvörnina --- almennilegt fólk þarna á fjórðu.... en í dag var gott að vakna með sólina í augun og svala goluna sem straukst í gegnum hárið sem nú er farið að verða svolítið kleprakennt eftir útiveruna --- já við skulum treysta á guð og lukkun að veðrið haldi áfram að batna....því hver veit nema einn daginn verðið þið hin rekin á dyr líka og við sameinumst öll út í náttúrunni undir sólinni með kleprakennt hár og tölvutengingu í gegnum ruslakvörnina og bloggum fréttir af lífinu hjá þeim sem minna mega sín - hvílið í friði!!!!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home