miðvikudagur, apríl 16, 2003

það er eitthvað í fokki hérna á blogginu mínu.......vona bara að það birtist ekki líka á síðunni!! En jæja það er þá ákveðið að mín verður hérna alla páskana......enginn matur hjá pabba, mömmu eða afa og ömmu :o( Hringdi nú samt í pabba áðan og bauð honum í mat hjá mér hérna í bænum......og auðvitað ætlar hann að koma!! Bauð mömmu í mat í fyrradag þannig að þetta er ekki jafn slæmt og það virtist ætla að vera. Ætla að skila einu verkefni í dag.......fara í ljós.......versla fyrir helgina.......og ákveða síðan hvort það verður bíó eða brjálað djamm í kvöld!!...Hef varla hugmynd um hvort það verða einhverjir hérna í borginni yfir páskana......jú Lóa....en hún er eina sem ég veit um - ef einhverjar einmana sálir ætla líka að eyða páskunum í borg óttans ....þá endilega látið mig vita!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home