föstudagur, febrúar 22, 2008

Bara húsmóðir

Það gerðist bara...

Börnin vöktust og klæddust.

Grauturinn eldaðist og átst.

Það bjóst um rúmin og sópaðist.

Þvotturinn þvoðist og hengdist upp.

Það gerðist við og stoppaðist í.

Það saumaðist og prjónaðist.

Tertan bakaðist og borðaðist.

Það vaskaðist upp og gekkst frá.

Börnin hugguðust og hjúfruðust.

Það breiddist yfir þau og þau kysstust góða nótt.


Þegar þau voru spurð:

Hvað gerir mamma þín?

Urðu þau undirleit og svöruðu lágt:

Ekkert, hún er bara heima.



Fann þetta á netinu og ákvað að henda þessu hér inn til heiðurs allra mæðra (og sumra feðra) og í tilefni þess að frá og með morgundeginum verð ég einstæð þriggja barna "móðir" í viku.

Góða helgi

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home