þriðjudagur, janúar 25, 2005

Það er komið að því - Arna er orðin frísk...Erla er orðin "næstum alveg frísk" - staðurinn hefur verið pantaður, gestalistinn skrifaður ....þið eigið bara eftir að fá boðskortið/sms-ið (eftir því hvort við höfum undir höndum) ---> Það er því loksins komið að hinu árlega stórafmæli sem í ár er í alvöru stórafmæli enda munum við samtals saman hafa lifað í hálfa öld og því er vert að fagna börnin mín.

Fögnuðurinn fer fram Laugardaginn 29. janúar! Nánari upplýsingar munu berast með boðskorti/boði - ef einhver er óþolinmóður og vill vita meira fyrr þá er honum velkomið að hafa samband - (eins gott að hann sé á gestalistanum) Legg til að þið takið frá kvöldið því margt verður um manninn og hugsanlega meira en oft áður :o)

Endilega undirbúið skemmtiatriði.
Gjafalista má finna í verslunum ÁTVR um land allt!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home