laugardagur, maí 24, 2008

Fyrr í dag var ég stödd á almenningssvæði utandyra hér í Reykjavík. Þar átti ég sama erindi og aðrir sem þangað koma og stundaði iðju mína á sama hátt og allir aðrir.......fyrir utan það smávægilega aukaatriði að ég hafði stillt upp kvikmyndavél og myndaði mig við iðju mína. Þetta virðist hafa vakið mikla eftirtekt, undrun og jafnvel hneykslan nokkurra ungra drengja því skyndilega var ég vör við að rétt fyrir aftan mig höfðu þeir lagt bíl sínum og horfðu á mig....væntanlega í forundran hvað kona í náttfötum með úfið hár væri eiginlega að hugsa að kvikmynda sjálfa sig svo illa til fara og við þessa iðju. Svo merkilegt þótti þeim þetta að einn þeirra stökk úr bílnum til þess að taka af mér mynd á símann sinn. Ég skil að þetta hefur nú varla verið fögur sjón en mér finnst nú heldur hart að vera mynduð af einhverjum unglingsstrákum sem sennilega eiga eftir að pósta þessari mynd /vidjói (veit ekki hvort var) inn á veraldarvefinn öðrum til skemmtunar - mér til háðungar!!

Þeim hefði væntanlega ekki fundist þetta jafn merkilegt og fyndið hefðu þeir vitað hvernig á þessu stóð.

Næst set ég upp skilti þar sem á stendur:

Vinsamlegast ekki trufla...hér er verið að gera stuttmynd........


Gleðilegt Eurovisionkvöld!!

miðvikudagur, maí 21, 2008

The good old days......





.....meira á myndasíðunni (ekki fyrir viðkvæma)

laugardagur, maí 17, 2008

Það er ábyggilega mjög gaman að vera í pössun hjá mér. Þá fær maður að klifra í Hljómskálagarðinum, borða skúffuköku í kaffinu, McDonalds í kvöldmat, nammi í eftirrétt, leira, spila Wii, horfa á StarWars og fara að sofa þegar maður er orðinn þreyttur!!
Og nú liggja steinsofandi þrír litlir englar í gestaherberginu mínu- búnir á því eftir daginn.

mánudagur, maí 12, 2008

Það var íííííískalt í Vaglaskógi sl. verslunarmannahelgi en það kom ekki að sök eins og sjá má:

Merkilegt hvað langar helgar eru fljótar að líða þegar maður hefur margt fyrir stafni. Við systur brunuðum norður á HVT á föstudaginn og gistum þar eina nótt. Þaðan lá leiðin á Skagó og árla sunnudagsmorgun héldum við aftur suður þar sem að ég vildi nú ekki missa af skírninni hans litla Rebba. Nú heitir hann ekki lengur Rebbi litli heldur Þórður Víkingur!!

Ég vil biðja ykkur öll um að taka frá helgina 15.- 17. ágúst í sumar og stefna á Skagaströnd. Þar verð ég ásamt Maríu "frænku" minni með listadaga auk þess sem Kántrýdagarnir eru sömu helgi. Til boða standa mjög góð tjaldstæði, annað í bakgarðinum hjá pabba og hitt nokkrum skrefum frá á tjaldsvæði bæjarins.

SKÁL!!!!

laugardagur, maí 03, 2008

Það er kannski við hæfi að óska ykkur gleðilegs sumars...ja allavegana ykkur sem búið hér sunnanlands. Skilst að það sé nú heldur vetrarlegt að sjá fyrir norðan. Ég tók menningarvitann á þetta sumardaginn fyrsta og bauð systur minni í menningarreisu á höfuðborgarsvæðinu. Hófum ferðina á Gljúfrasteini og lifðum okkur inn í líf Halldórs og Auðar Laxness, héldum síðan á Kjarvalsstaði og skoðuðum útskriftarsýningu nemenda í LHÍ. Þar mátti sjá margt mjög áhugavert og skemmtilegt en einnig annað síðra. Meðal annars var ég bara ansi hissa á því að einn nemanna hafi einfaldlega fengið leyfi til þess að útskrifast enda virtist honum/henni lítið hafa farið fram síðan á sandkassaárunum. Hvað um það..við enduðum svo ferðina á Listasafni Reykjavíkur þar sem nokkrar sýningar voru í gangi eins og tíðkast á þeim bænum. Ég hélt áfram að vera menningarlega á laugardeginum en tók mér pásu á sunnudeginum.

(Nú eru vörubílstjórarnir byrjaðir að mótmæla aftur og keyra hér hægt fram hjá Kringlunni og þeyta flauturnar. Ég vinkaði þeim vinalega af svölunum en það dugði víst ekki til þess að draga úr ákafanum hjá þeim. Verst hvað þeir eyða nú mikilli olíu á því að vera svona stöðugt á rúntinum. Ég sem hélt þeir þyrftu að spara aurinn. Hvað um það....ég ætla ekki að lýsa því yfir hér hvaða skoðun ég hef á mótmælunum þeirra. Það skilja mig nefninlega ekki allir.)

Mér finnst alger snilld að hafa frídaga svona í miðri viku eins og sl. tvær vikur og þennan síðari notuðum við Arna til þess að rúnta, éta Búlluborgara og franskar með Bernaisesósu, tékka á móturhjólaliðinu, gefa öndunum og sílamávunum brauð (þess má geta að sílamávar heita eftir föður mínum á latínu: larus fuscus. Ja allavegana fyrra nafninu. Mér finnst það afar skemmtileg uppgvötun) já og svo sóluðum við okkur í blíðunni ásamt öðrum kátum borgarbúum.

Í morgun (já ég var komin á fætur löngu fyrir hádegi) hóf ég svo tökur á stuttmyndinni minni sem verður frumsýnd 1. júní n.k.
Ef mér tekst að klára hana á tíma fæ ég vegleg peningaverðlaun fyrir - það er því ekki seinna vænna að byrja á verkinu!!!

Er ekki best að enda þetta á fáeinum myndum??!!

Villi og Erla við morgunverðarborðið í sumarbústað

Við Kerið

Jóhann í fíling í Kántrý


Ég og litli Rebbi